Aukið gagnsæi
í lífeyrisskuldbindingum
Rauntímagreining á skuldbindingum sem tekur flækjustigið úr tryggingafræðilegum útreikningum, svo þú getir einbeitt þér að stefnumótandi greiningu og ákvarðanatöku.
Fyrir sérfræðinga sem þurfa að skilja stöðu skuldbindinga hjá lífeyrissjóðum
Bylting í greiningu lífeyrissjóða
Meðal viðskiptavina okkar eru stórir lífeyrissjóðir sem nota Everen tryggingafræðikerfið til að ganga lengra en árlegt tryggingafræðilegt mat. Þeir keyra sviðsmyndagreiningu, skipuleggja sjóðstreymi og fylgjast með breytingum á skuldbindingum um leið og þær verða.
Ráðgjafar sem einbeita sér að virðisauka
Ráðgjafar nota Everen tryggingafræðikerfið til að keyra tryggingafræðilega útreikninga á sekúndum og verja tíma sínum þar sem það skiptir máli: að tryggja að gögnin séu rétt, skilja hvað drífur breytingar og áhættu og veita stefnumótandi ráðgjöf.
Greiningar keyrðar á sjóðfélagagögnum á sekúndum
Tafarlaus innsýn
Reiknaðu skuldbindingar sjóðsins á sekúndum, skoðaðu væntanlegt sjóðstreymi og skildu hvað drífur skuldbindingar þínar, hvar áhættan safnast saman og hvernig hún breytist yfir tíma.
Berðu saman raun og forsendur
Berðu saman útkomu sjóðfélaga við fræðilegar forsendur þínar. Er örorkutíðnin eins og þú býst við? Hvernig standast dánartíðnitölurnar forsendur þínar?
Álagsprófaðu tryggingafræðilegar forsendur
Álagsprófaðu forsendur og skuldbindingar sjóðsins. Uppfærðu dánartíðni, örorku eða hverja aðra tryggingafræðilega forsendu og sjáðu áhrifin á skuldbindingar þínar. Hversu næmur er sjóðurinn fyrir tryggingafræðilegu forsendunum að baki útreikningunum?
Gagnsæi og nákvæmni við stefnubreytingar
Skildu áhrif reglugerða og/eða stefnubreytinga. Hverjir verða fyrir áhrifum, hversu mikið, og hver eru áhrifin á skuldbindingar þínar.
Viltu vita meira?
Bókaðu fund með einum af tryggingafræðingum okkar til að ræða greiningarþarfir þínar, kynnast vísindalegri nálgun okkar og sjá kerfið í beinni!
Hafðu samband